1932.is
--------------------------------- 
---------------------------------
 
 
Náttúrusteinar
 
 
Einhvern vegin hef ég alltaf haft ótrúlegan áhuga á steinum og
þegar ég var lítil var ég oft með steina í vasanum og geymdi þá
þó þeir væru engir gimsteinar bara grjót eins og sagt er þá voru        þeir mínir gimsteinar. 
 
Ég hef velt fyrir mér hvers vegna þetta er, og held að þetta gæti
verið af því að ég alltaf verið aðeins fyrir ofan jörðina í hugsun og
þetta sé jarðtengingin mín,  svo finnst mér voða gott að halda      utan um steina og gera þá heita og mjúka eins og ég kalla það.
 
Ég eignaðist síðan tengdamóður sem var alveg eins með þetta,            og ræddum við oft hversvegna þetta væri svona, með okkur.
 
 
 
 
Til gamans
 

 

Mánaðar steinar

Janúar - Garnet 
Febrúar - Amethyst 
Mars - Aquamarine og Blóðsteinn 
Apríl - Diamond og hvítur Sapphire                                                Maí - Emerald
Júní - Pearl, Mánasteinn og Alexandrite 
Júlí - Ruby 
Ágúst - Peridot og Sardonyx 
September-  Sapphire 
Október - Opal og Tourmaline (bleikt og grænt) 
Nóvember - Topaz, Topaz Quartz og Citrine gult
Desember - Turquoise, Zircon, Blue Topaz og Lapiz Lazuli

 

 

Fróðleikur um málma

Silfur að styrkleika 925 er 92,5% silfur

og 7,5% af öðrum sterkari málmum

s.s. (stál) sterling, kopar ofl. til

gera hlutina sterkari og endinga betri.

 

Hreint silfur er stundum of mjúkt í hluti sem

maður notar mikið og þurfa að endast.

-----------

 

Tíbets silfur dreka hringur

Á að færa eigandanum gæfu ást og frið

Tíbets silfur er kallað gamalt silfur, sem unnið er upp

hlutirnir eru yfirleitt handgerðir af silfursmiðum í Tíbet 

-------

 
 
   
 
 
Fróðleikur um steina
  
 
Hér á eftir ætla ég að setja inn ýmsan fróðleik um steina þar
sem þeir eru svona rosalega vinsælir og ómissandi á skartgri 
 
Ég hef lesið mikið um steinategundir og til dæmis um hvernig
Indiánar skilgreindu misjafnt orkuflæði sem fellst í hverri  
steinategund fyrir sig, og hvernig þeir nýttu sér hana sér til hjálpar. 
  
Getur þetta með orkuna þá verið satt ?
 
Ef þið hafið fróðleik um steina, þá væri gaman að birta það hér
og ef farið er með rangt mál þá væri gott að leiðrétta það 
 
 
Amethyst Crystal
 
   
 
Í stjörnuspeki er Amethyst steinn þeirra sem fæddir eru í febrúar 
 
 
Amethyst  er crystal tegund gegnsær og mikið notaður í skartgripi
og  þá er hægt að skera á fjölbreyttan hátt, þess vegna er hann
svona vinsæll í skartgripagerð.  Hann er líka tiltölulega ódýr.
Þess vegna hafa flestir efni á honum.
Ef þú ert að leita að fallegum náttúrusteini þá er Amethyst crystal    góður kostur. Flestar aðrar steinategundir verður að slípa meira,           til að fegurð þeirra komi í ljós  Litirnir eru stór þáttur í þeirri  stórkostlegu fegurð Amethyst.  
Litirnir í Amethyst eru frá glærum lit og upp í dökk fjólubláann.
 
 
 
Virkni Amethyst Amethyst er nátengdur huga mannsins, og
skerpir á sköpunargleði manna. Hann er afar andlegur steinn.
Sagt er að ef einstaklingur er skyggn þá er hann góður til að
þjálfa næmni þriðja augans. Hann er góður fyrir einbeitinguna,
og að koma í veg fyrir höfuðverk  
Hann fjarlægir neikvæða orku úr líkanum og eykur góða andlega
eiginleika.  hann sendir frá sér jákvæða orku og hindrar að vond 
orka komist að, menn trúa því að hann sé yfirnáttúrulegur. Amethyst
veitir öryggiskennd og vellíðan.  
Og sá sem gefur Amethyst gefur tákn um einlægni, tryggð og hreinskilni.
Ametyst er all frá því að vera glær upp í að vera fallega dökk fjólublár
og er Quartz,  og er afar fallegur á litinn.
 
 
Sagan segir að Amethyst hafi verið til forna gimsteinn hástéttarinna.
 
Kóróna Breska konungsdæmisins er m.a. með Amethyst.
 
Katrín mikla hélt mikið upp á Amethyst.
 
Og auðugar Egyptskar fjölskyldur er sagðar alltaf hafa átt Amethyst 
í skartgripaskrínum sínumagan af Amethyst
 
Hringur m. Amethyst er sagður innsigla sanna og hreina vináttu

Hálsmen m. Amethyst er gefið til að sýna hlýhug og stuðning við ástvinina
 
 
 
  
 
  
Sagan af Amethyst er líklega byggt á ákveðinni sögu úr 
grísku goðafræðinni.
 
Ég vonast til að finna þessa sögu og segja hana hér.
 
 
 
 
Perlur
 
 
 
 

 
 
Við vitum hvaðan korn, hveiti, hrísgrjón og bómull koma,      
en hvaðan koma perlurnar  ?
 
 
Hér á slóðinni fyrir neðan getið þið getið séð hvernig  
feskvatns perlur eru ræktaðar 
 
 
 
 
 
Feskvatns Perlur eru ræktaðar á Perlu búum víða í Kína og Japan, Kóreu ofl. og vaxa eins og hver önnur uppskera innan í kræklingum. 
 
 
 
Sjávar perlur vaxa í ostrum og eru um öll heimsins höf  og strendur 
m. a. í  Kína, Hong Kong,  Japan,  Kóreu, Sri Lanka,  Thaiti,  
Raupahafinu, Persaflóa, Suðurhöfum, Filippseyjum,  Indonesiu,  Karabiahafinu, við strendur Bandaríkjanna, og  Alaska ofl.  ofl…
 
 
 
                     Mjög vinsælar eru Akoya oysters Perlur frá Kína
 
 
Þær tegundir sem ég hef fundið eru
 
Hvítar perlur -
Svartar perlur -
Bleikar perlur
Peach perlur -
Lavender perlur
                               
 
 
Fegurð perlunnar hefur alla tíð verið dáð af konum um allann heim.
 
 
         
 
 
 
 
 
  
 
 
 
 
 
Tourquise
Túrkis
 
Næst fjöllum við um hinn vinsæla og andlega Tourquise
 
 
 
 Tourquise náttúrusteinninn getur verið frá grænum
asískum og uppí þennann fallega skærbláa túrkis
 
 
 
 
 
 
 
 
Hér eru nokkrir skartgripir með Tourquise náttúrusteinum í
Hann er feykilega vinsæll í allskonar skart.